
Nýsköpunarhraðall HÍ fyrir konur:
Ert þú með góða viðskiptahugmynd?
Hvað er AWE?
Háskóli Íslands stendur í vetur fyrir nýsköpunarhraðli fyrir konur undir merkjum AWE eða Academy for Woman Entrepreneurs í samvinnu við bandaríska sendiráðið á Íslandi.
Aldrei hefur verið mikilvægara en nú að fjölga sprotum og efla nýsköpun í íslensku efnahagslífi og að sama skapi auka hlut kvenna á þeim vettvangi. Markmið hraðalsins er að efla konur til að þróa áfram sínar viðskiptahugmyndir, bjóða upp á fræðslu og efla tengslanetið.
Verkefnið er á vegum bandarískra stjórnvalda og er í boði víða um heim. Það samanstendur af netnámskeiðinu Dreambuilder á vegum Thunderbird School of Managament við Ríkisháskólann í Arizona og vinnulotum sem Háskóli Íslands heldur utan um.
Virkjum nýsköpunarkraft kvenna!
Umsóknarfrestur var til og með 29. nóvember 2020.
Fyrir hverjar?

Konur á öllum aldri geta sótt um að taka þátt í hraðlinum og verða 20-25 umsækjendur valdir til þátttöku.
Þær konur sem valdar verða til þátttöku skuldbinda sig til að fara í gegnum efni netnámskeiðsins og taka þátt í vinnulotum.
Æskilegt er að umsækjendur hafi viðskiptahugmynd sem þróuð verður í gegnum námskeiðið.
Eða hafi nýlega stofnað fyrirtæki sem hefur gagn af því að fara í gegnum hraðalinn.

Við hverju má búast?

STUÐNINGUR
Sérfræðingar innan og utan Háskóla Íslands styðja við bakið á þátttakendum.

TENGSL
Tengslatorg HÍ og náms- og starfsráðgjafar HÍ hjálpa þér að efla tengsl.

VÖXTUR
Nýsköpunarhraðall hjálpar þér að vaxa og koma hugmyndinni í verk. Þú virkjar þinn innri kraft!